Georg, hérna megin á hnettinum er klukkan sjö um morgun. Allavegana, FH komnir í aðra umferð uefa keppninar og á topp deildarinnar, gæti ekki verið betra. 3 árið í röð verður farið að Skógafossi og tjaldað um verslunarmannahelgina. Það er skítaveður. Það var skítaveður á Hróarskeldu. Það mættu bara 2 á Hansen, Guðjón og Maggi. Ég skal segja þér (Georg) afhverju það er fyndið þegar þú kemur heim. Svo hringdu þeir reyndar í Hinrik og hann kom líka, en seinna. Nú þarf ég að fara í vinnuna, písát.
Úbbs, ruglar maður þvílíkt í dagsetningum! Það er svona þegar manni er boðið eitthvað með margra vikna fyrirvara, þá breytist þetta allt í hausnum á manni með tímanum. Ég get semsagt bæði farið í fyllerí í ammæli Mistar og útskrift Brynju, því hún er ekkert fyrr en 19. júní! Ha! Þessa dagana er bara verið að standsetja Volvo fyrir skoðun, sem er btw til sölu eftir skoðun, og vinna. Þessvegna ætla ég ekki að skrifa neitt meira, Písát!
Dúndurfjör á KoRn, eiginlega. Maður var hálfþreyttur fyrir og eftir dúndurshow hjá Fantómas (sem ekki allir eru sammála mér um að sé snilld (nema Sigurjón Kjartansson)) þá létu KoRn bíða eftir sér dálengi og maður var bara orðinn svangur og kaldur og hrakinn þegar þeir loksins stigu á svið. Greyið Jonathan Davis þurfti að hlaupa á bakvið hátalara á milli laga og öðru hverju í miðju lagi til að anda af súrefniskútnum sínum, hann er víst með astma kallinn. Helgin var góð, mikið djamm á föstudagskvöldið en var mjög rólegur á laugardag og sunnudag vegna þess að ég er að taka verklega tíma á trailer og þá þýðir ekki að vera þunnur :( Annars var það mjög fyndið á föstudaginn að blindfullar einstæðar mæður eltu
Georg félaga minn á röndum og reyndu að "kynnast honum betur" en þær þekktu hann af leikskólanum sem hann vinnur á. Sem betur fer fyrir þær þá fór hann beint til Köben og þaðan til Asíu þar sem hann ætlar að eyða sumrinu með kærustunni. Það var verið að hringja í mig og breyta tímasetningu á seinasta ökutímanum mínum á trailer fyrir próf, á að mæta stuttu eftir hádegið, svo er bara próf á morgun ... sjitt.
Mist er búin að bjóða mér og
Svölu í tvítugsammælið sitt sama dag og
Brynja bauð okkur í útskriftarveislu. Erfitt val. En ... back to work, Písát!