Hmm, sunnudagur laus við þynnku! Gott mál, enda vinna eftir klukkutíma :) Ég er að fara að vinna á pizzastað aftur. Margt sem bendir til geðveilu, núna er ég í fullri vinnu, skóla 5 sinnum í viku og svo vinn ég aðra hverja helgi á Pizzunni í Gbæ, en þar vinna líka gellur. Og svo nottla Arnþór og Reynir eða Dýri og Röri, sem eru miklir fagmenn. Hitti meira að segja
Reynir með kellingunni sinni á Dillon á föstudagskvöldið og voru þau í léttum gír að bölva
Mist fyrir að fara á
Damien Rice. Fór ekki á Starsky & Hutch, og keypti mér ekki heldur nýjan minniskubb, þetta er lame. Verður öllu saman bjargað í vikunni, og væntanlega mun ég líka kaupa mér miða á Kraftwerk og Pixies. Mikið fjör þar og æfi ég robot dansinn minn alla daga. Horfði á vídjó úr sumarbústaðaferð í gær, magnað hvað maður gerir ekki eftir nokkra öller. Þessi vídjó verða brátt sýnileg á hinni kynngimögnuðu síðu
hresslinga en núþegar eru komnar myndir úr ferðinni þar og einnig hjá
Brynju og vill ég taka fram að myndirnar þar sem ég virðist sofandi eru uppstillingar. En jæja, písát